Lög Íslendingafélagsins
Mars 2001

1.NAFN
2.HEIMILI
3.MARKMIÐ
4.FÉLAGSMENN
5. STJÓRN
6. STJÓRNARFUNDIR
7. AFSÖGN STJÓRNARMANNS
8. FJÁRHAGSÁR
9. AÐALFUNDUR
10. SÉRSTAKUR AÐALFUNDUR
11. FUNDARBÆRT

12. FRAMGANGUR Á AÐALFUNDI
13. TILKYNNING UM FUNDI
14. FJÁRMÁL
15. HEIMILD TIL GREIÐSLU REIKNINGA
16. ENDURSKOÐUN
17. FUNDARGERÐIR
18. BROTTREKSTUR MEÐLIMA
19. FYRNING MEÐLIMA
20. TRÚNAÐARMENN
21. UPPLAUSN FÉLAGSINS
22. BREYTINGAR Á REGLUM FÉLAGSINS

Athugið:  Þetta er aðeins lausleg þýðing á reglum félagsins úr ensku.  Ef túlka þarf lög félagsins mjög nákvæmlega, þá mun hin enska útgáfa vera sú sem réttust er.

1. NAFN

(a) Nafn félagsins skal vera  ÍSLENDINGAFÉLAGIÐ Í NSW.

Up aftur

2. HEIMILI

(a) Félagið hefur aðsetur í Sydney

Up aftur

3. MARKMIÐ

Markmið félagsins eru:

(a) Stuðla að tenglsum á milli Íslendinga sem búa í Ástralíu og Ástralska samfélagsins

(b) Viðhalda menningu, hefðum og tungumáli þeirra sem eru af Íslenskum uppruna og búa í Ástralíu

(c) Stuðla að menningar samskiptum á milli Íslands og Ástralíu og þeirra Íslendinga sem í Ástralíu búa og Ástralska samfélagsins

(d) Koma Íslendingum sem eru búsettir í Ástralíu til hjálpar ef þörf krefur

(e) Auðvelda Íslenskum innflytjendum aðlögun í Áströlsku samfélagi jafnramt því að viðhalda menningu, hefðum og tungumáli Íslendinga sem búa í Ástralíu.

(f) Auðvelda Íslenskum innflytjendum að setjast að í Ástralíu.

(g) Framkvæma þá hluti eða aðgerðir sem stjórnarnefnd félagsins telur vera í bestu þágu félagsins.

Up aftur

4. FÉLAGSMENN

Félagsmenn

(a) Umsókn um aðild að félaginu skal vera gerð skriflega og undirrituð af umsækjanda.  Umsóknareyðublaðið skal vera í samræmi við ákvörðun stjórnarinna eftir því sem best þykir hæfa hverju sinni.

(b) Svo fljótt sem auðið er eftir viðtöku umsóknar um aðild að félaginu, skial stjórn félagsins ákvarða hvort umsóknin verður samþykkt eða ekki.

(c) Skrá skal vera haldin yfir alla sem eru meðlimir í félaginu með nafni, heimilisfangi og hvenær viðkomandi gekk í félagið.

Up aftur

5. STJÓRN

Stjórn

(a) Stjórn félagsins skal vera í höndum stjórnarinnar, sem saman stendur af Formanni, Vara formanni, Ritara, Gjaldkera og einum meðstjórnanda.

(b) Engin félagsmaður má þyggja laun fyrir vinnu sína í þágu félagsins.  Engum meðlim stjórnarinnar skal greitt í peningum eða öðru sem er peninga virði, fyrir utan beinan útlagðan kostnað sem hlýst af rekstir félagsins.  Leigufé má greiða svo fremi sem það er sangjarnt og tillhlýðilegt fyrir húsnæðisaðstöðu sem félaginu er veitt. Vextir skulu ekki vera hærri en þeir sem eru innheimtir eru af bönkum í Sydney fyrir peninga sem lánaðir eru félaginu. .

(c) Stjórnarmenn félagsins skulu vera kosnir árlega með leynikosningu á aðalfundi félagsins.  Hver stjórnarmaður skal vera kosin sér. 

(d) Ef einhver stjórnunarstaða losnar á meðal stjórnarinnar, er stjórn félagsins heimilt að skipa nýjan aðila til að taka að sér þá stöðu.  Sá aðili gegnir því starfi til loka þess tímabils sem viðkomandi aðili var upphaflega kosin til að gegna.

(e) Stjórn félagsins er heimilt að skipa félagsmenn í stöður til þess að aðstoða við starfsemi félagsins.

Up aftur

6. STJÓRNARFUNDIR

Framgangur stjórnarfunda félagsins:

(a) Stjórn félagsins skal koma saman til fundar, ekki sjaldnar en fjórum sinnum á árinu til að stýra félaginu.  Stjórninni er heimilt að taka ákvarðanir, fresta fundum og stýra stjórnarfundum á þann veg sem henni finnst best.

(b) Formaður félagsins getur hvenær sem er boðað stjórnarfund.  Formaður verður einnig að boða stjórnarfund ef þrír stjórnarmeðlimir óska þess.

(c) Allar ákvarðanir sem teknar eru til ákvörðunar af stjórninni lúta meirihluta atkvæða þeirra stjórnarmanna sem viðstaddir eru á stjórnarfundinum.  Hver ákvörðun sem tekin er af meirihluta stjórnarinnar telst vera vilji stjórnarinnar.

(d) Allir stjórnarmeðlimir hafa jafnan rétt til greiðslu atkvæðis.  Ef atkæði falla jöfn, þá hefur fundarstjóri afgerandi atkvæði.

(e) Ef margar stöður losna í stjórninni geta starfandi stjórnarmeðlimir haldið áfram að stjórna félaginu, svo lengi sem fjöldi þeirra uppfyllir lágmarkskröfur um fjölda stjórnarmeðlima til að geta haldið löglegan fund samkvæmt reglum þessum.  Falli tala stjórnarmeðlima niður fyrir það sem reglur félagsins segja til um, geta starfandi stjórnarmeðlimir einungis stuðlað að því að boða nýjan aðalfund félagsins til að kjósa nýja stjórnarmeðlimi.  Engar aðrar ákvarðanir eru heimilar.

Up aftur

7. AFSÖGN STJÓRNARMANNS

Staða stjórnarmeðlims getur losnað í eftirfarandi tilfellum:

(a) Fráfalli stjórnarmeðlims

(b) Ef stjórnarmeðlimur verður gjaldþrota eða hann neyðist til að semja nauðasamninga við lánadrottna sína.

(c) Ef stjórnarmeðlimur verður veikur á geði eða ef hans eignir eru á einhvern hátt háðar stjórnvaldsskipun í samræmi við lög og reglur þeirra sem teljast vera veikir á geði.

(d) Ef stjórnarmeðlimur segir sig skriflega úr stjórninni.

(e) Ef stjórnarmeðlimur mætir ekki á stjórnarfundi félagsins í sex mánuði, án þess að hafa leyfi stjórnarinnar. 

(f) Ef stjórnarmeðlimur hættir að vera meðlimur í félaginu.

(g)Ef löglega boðaður auka aðalfundur félagsins tekur ákvörðun með tveim/þriðju greiddra atkvæða er hægt að víkja stjórnarmeðlim úr stjórn.

(h) Ef stjórnarmeðlimur hefur einhvern hagnað af því að skipta við félagið.

(i) Ef stjórnarmeðlumur hefur einhverra beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta í sambandi við fjármál félagsins við aðra aðila.

Up aftur

8. FJÁRHAGSÁR

(a) Fjárhagsár félagsins lýkur 31sta desember ár hvert.

Up aftur

9. AÐAFUNDUR

(a) Formaður skal boða til aðalfundar í Febrúar mánuði ár hvert. Þar skal leggja fram skýrslu um starfsemi félagsins og fjárhagsstöðu.

Up aftur

10. SÉRSTAKUR AÐALFUNDUR

(a) Þrír stjórnarmeðlimir félagsins geta hvenær sem er boðað til sérstaks aðalfundar í félaginu.

(b) Fundarboð um sérstakan aðalfund skal vera tilkynnt með minnst tveggja vikna fyrirfara.

(c) Sérstakur aðalfundur skal vera boðaður af ritara félagsins, ef hann fær skriflega beiðni undirritaða af minnst tíu prósent félaga sem eru í félaginu.

(d) Sé slíkur sérstakur aðalfundur boðaður, eins og getið er í lið (c), þá skal havv haldin innan eins mánaðar frá því að beiðnin barst.

Up aftur

11. FUNDARBÆRT

(a) Aðalfundir félagsins eru fundarbærir ef minnst 10 meðlimir eru mættir til fundar

(b) Stjórnarfundur í félaginu er fundarbær ef minnst 4 stjórnarmeðlimir eru mættir til fundar.

(c) Sé ekki fundarbært innan klukkustundar frá fundarboðinu, þá skal fundinum vera frestað og nýr fundur boðaður innan eins mánaðar.

(d) Ef á frestaða fundinum er enn ekki fundarbært samkvæmt lið (a) skal fundurinn teljast fundarbær ef minnst 3 meðlimir eru mættir til fundar.

Up aftur

12. FRAMGANGUR Á AÐALFUNDUM

(a) Formaður skal vera fundarstjóri á öllum aðalfundum félagsins.  Ef hann er ekki mættur 15 mínotum eftir að fundurinn átti að byrja, eða ekki viljugur að taka fundarstjórn að sér, þá geta þeir meðlimir sem á fundinum eru kosið nýjan fundarstjóra úr röðum meðlima með meirhluta atkæða..

(b) Fundarstjóri má með samþykki meðlima á fundarbærum fundi fresta fundinum til annars tíma eða staðar.  Á slíkum framhalds fundi skal einungis taka fyrir efni frá hinum frestaða fundi og engin ný málefni má taka upp.  Ef fundi er frestað í 30 daga eða meira, skal áframhaldandi fundur vera boðaður líkt og upphaflegi fundurinn.  Það þarf ekki að tilkynna fyrirfram frestun á fundum eða málefni þau sem ræða á frestaða fundinum.

(c) A aðalfundurm, skal greiða atkvæði um ákvarðanir með handauppréttingum.  Fundarstjóri eða þrír meðlimir á fundinum geta farið fram á nafnakall annaðhvort fyrir eða eftir atkvæðagreiðslu með handauppréttingum.  Sé nafnakall ekki framkvæmt, getur fundarstjóri ákvarðað í samræmi við handauppréttingar á hvern veg atkæði hafa fallið og sagt til um að viðkomandi tillaga hafi verið samþykkt eða fellt með meirihluta atkvæða.   Slíkur úrskurður af hálfu fundarstjóra skal vera skráður í fundargerð og ekki er skyllt að geta fjölda þeirra sem samþykktu eða felldu tillögu.  Heimilt er að afturkall kröfu um nafnakall.

(d) Sé nafnakall krafist, skal það fara fram samstundis eða eftir frestun að ákvörðun fundarstjóra.  Úrslit nafnakalls er bindandi ákvörðun félagsins.  Sé nafnakall krafist um kosningu fundarstjóra eða frestun fundar, skal það fara fram samstundis.

(e) Falli atkvæði jöfn, hvort sem er með handauppréttingum eða nafnakalli, er fundarstjóra heimilt að greiða annað atkvæði til að ná fram úrslitum.

(f) Hver meðlimur sem er á fundi í félaginu hefur eitt attkæði sem hann getur notað, svo fremi sem hann hafi greitt ársgjald félagsins.

Up aftur

13. TILKYNNING UM FUNDI

(a) Ritari félagsins skal boða aðalfundi í félaginu skriflega  með minnst fimmtán daga fyrirvara.  Taka skal fram stað, dagsettningu, tíma og efni fundarsins sem fjallað verður um.

Up aftur

14. FJÁRMÁL

(a) Allir peningar sem félagið fær skulu vera innlagðir í bankareiking svo fljótt sem auðið er.  Kvittanir fyrir greiðslum til félagsins skal vera sent til greiðanda svo fljótt sem auðið er.

(b) Allar greiðslur sem félagið innir af hendi umfram $10 skulu greiddar með ávísun og skal hún vera árituð af minnsta kosti tveim stjórnarmeðlimum úr röðum formanns, ritara eða gjaldkera.

Up aftur

15. HEIMILD TIL GREIÐSLU REIKINGA

(a) Allir reikningar skulu vera bornir upp og samþykktir á stjórnarfundi og þær samþykktir færðar í fundargerð.

Up aftur

16. ENDURSKOÐUN

(a) Endurskoðandi skal vera kosin á aðalfundi félagsins.  Honum er skyllt að skoða alla reikninga félagsins, kvittanir, greiðslubækur og þess háttar.  Hann skal gera skriflega skýrslu sem lögð er fram á aðalfundi félagsins.  Endurskoðun skal vera gerð á reglulegum fresti en ekki sjaldnar en á tólf mánaða fresti.

(b) Endurskoðandi má ekki vera meðlimur, eða nátengdur stjórnarmanni félagsins.

(c) Í samræmi við lið (d) skal tilkynning um þá ætlun að tilnefna nýjan endurskoðanda vera gerð með minnst 21 eins daga fresti fyrir aðalfund félagsins.  Ritari skal senda tilnefninguna til starfandi endurskoðanda minnst 7 dögum fyrir aðalfundinn.  Starfandi endurskoðanda er heimilt að mæta á aðalfundinum og er heimilt að tala ef honum sýnist svo.

(d) Í því tilfelli sem starfandi endurskoðandi segir af sér eða lætur ritara vita að hann ætlar ekki að halda áfram endurskoðun fyrir félagið, þá gildir liður (c) ekki.

Up aftur

17. FUNDARGERÐIR

Stjórn félagsins skal láta færa í fundargerð eftirfarandi:

(a) Skipun stjórnarmeðlima og annara  meðlima félagsins til starfa fyrir félagið.

(b) Nöfn allra stjórnarmeðlima á öllum fundum sem haldnir eru í félaginu.

(c) Allan framgang allra funda sem haldnir eru af stjórn félagsins.  Slík fundargerð skal vera árituð af fundarstjóra fundarins á fundinum eða næsta fundi á eftir.

Up aftur

18. BROTTREKSTUR MEÐLIMA

Stjórn félagsins getur rekið meðlim úr félaginu, ef að áliti stjórnarinnar framferði meðlims þykir brjóta í bága við hagsmuni félagsins.  Slíkum meðlim skal heimilt að skýra sitt mál fyrir stjórn félagsins munnlega eða skriflega að ákvörðun stjórnarinnar.  Slíkur brottrekstur er háður eftirfarandi:

(a) Brottreksturinn er ekki gildur nema hann sé staðfestur af meirihluta félaga sem mæta á sérstaklega boðaðann aðalfund þar sem brottreksturinn er til umræðu.

(b) Slíkur sérstakur aðalfundur skal vera boðaður innan eins mánaðar frá þeim tíma sem stjórnin ákveður að reka meðlim úr félaginu.

(c) Á slíkum aðalfundi þar sem rætt er um brottrekstur meðlims, skal þeim meðlim heimilt að flytja mál sitt munnlega eða skriflega eftir því sem hann kýs.

(d) Atkvæðisgreiðlsa á slíkum fundi skal vera leynileg ef minnst fimm félagsmenn óska þess.

(e) Stjórnin getur bannað meðlim að taka þátt í starfsemi félagsins, þar til hans mál er tekið fyrir á sérstökum aðalfundi..

Up aftur

19. FYRNING MEÐLIMA

(a) Meðlimur sem greiðir ekki félagsgjaldið í eitt ár hættir að vera meðlimur í félaginu.

Up aftur

20. TRÚNAÐARMENN

(a) Þ´rír trúnaðarmenn skulu vera kosnir á löglega boðuðum aðalfundi.

(b) Allar eignir sem félagið á skulu vera afhentar trúnaðarmönnum og munu þeir geyma alla eignarhaldssamninga, hlutabréf og öll þessháttar skjöl sem er í eigu félagsins.  Þeir ráðstafa slíkum eignum og tekjum af slíkum eignum í samræmi við óskir stjórnarinnar hverju sinni, svo fremi sem slíkar ákvarðanir brjóti ekki í bága við ákvæði sem kveðið er á í slíkum skjölum.

Up aftur

21. UPPLAUSN FÉLAGSINS

(a) Niðurlagning starfseminar eða upplausn félagsins. Félagið skal leyst upp ef meðlimir verða færri en 10, eða þrír/fjórðu af meðlimum félagsins á sérstökum aðalfundi greiða atkæði um upplausn félagsins.

(b) Eignir félagsins við upplausn. Ef félagið er uppleyst  í samræmi við lið (a), þá þarf að gera upp fjármál félagsins með því að innheimta öll útistandandi skuldir og greiða alla reikninga sem eftir standa.  Þær eignir, hvort sem er fasteignir eða fjármunir skal afhenda félagi sem hefur svipuð markmið, eða skráðum góðgerðarsamtökum, eða þeim félagasamtökum sem sérstakur aðalfundur eftirstandandi félagsmanna ákveður.

Up aftur

22. BREYTINGAR Á REGLUM FÉLAGSINS

(a) Þessum reglum félagsins má breyta með samþykki tvo/þriðju meirihluta atkvæða félagsmanna sem sérstaklega hefur verið boðaður í tilefni af breytingunum.

(b) Tilkynning til félagsmanns má afhenda persónulega eða með því að senda það í pósti á heimilisfang félagsmanns eins og það er skráð í félagsskrá.  Hafi félagsmaður ekki skráð heimilisfang, er nægjanlegt að senda bréf á síðasta heimilisfang sem stjórn félagsins var kunnugt um.  Þegar tilkynning er send í pósti, telst það vera fullnægjandi ef tilkynninging er sett í bréf sem hefur það heimilisfang sem best er vitað, er með gildu frímerki eða greitt fyrir sendinguna og bréfið sett í póst.  

Up aftur