|
| Íslenskar vörur |
| Svipaðar vörur |
| Verkunnaraðferðir |
| Algengar íslenskar uppskriftir |
Það er ekki hægt að fá margar íslenskar vörur hérna í ástralíu. Eina íslenska varan sem finnst reglulega er íslenskur kavíar, rauður og svartur í 50gr dósum frá Iceland Waters. Hann er til í flestum stórum verslunum, eins og Woolworths, Coles og Franklins.
Þegar maður er að elda íslenskar uppskriftir og þarf á að halda dæmigerðar íslenskar matvörur, þá eru margar vörur fánlegar í ástralíu sem líta svipað út en bragðast allt öðruvísi. Hér fyrir neðan má sjá smá lista yfir dæmigerðar íslenskar vörur sem við þekkjum flest og ástralskar vörur sem eru einna líkastar þeim íslensku.
Íslensk Vara |
Líkust Áströlsk vara |
| Gunnars Majones | SW Mayones |
| Bjúgu | Kransky's |
| Hangikjöt | Smoked Mutton, fæst í Coles rétt fyrir jól |
| Ýsa | Sea Perch |
| Steiktur Laukur | DOREE - Fried Onions, 100g, fæst í Woolworths |
| Rúgmjöl | Rye Meal - Fæst í mörgum health food stores |
Hér má sjá upplýsingar um algenga verkunnaraðferðir sem notast má við að útbúa algengan íslenskan mat. Ef þú hefur upplýsingar um fleiri aðferðir, þá væru þær vel þegnar.
Rúgbrauð
Flatkökur
Lifrarpylsa
Kokteilsósa
Íslensk afurð |
Framleiðsluaðferð |
| Rúgbrauð | 6 bollar rúgmjöl (Rye Meal) 2 bollar hveiti 1 msk. salt 1.5 bolli sykur 5 tsk. ger (Baking powder) Vætt í með 1,4 l. Létt mjólk Þurrefnin eru sett í skál og mjólkin hituð og hrærð samanvið. Sett í álform með álpappír yfir og bakað í eina klukkustund við 50C en þá er hitinn hækkaður í 100-120C og bakað i 11-12 klukkustundir. |
| Flatkökur | 500 gr rúgmjöl - Rye Meal 1/2 tsk salt 250-300 ml sjóðandi heitt vatn Blandið saltinu og rúgmjölinu saman. Bætið útí heitu vatni og hnoðið. Deigið á að vera mjúkt en ekki hart. Fletjið út í þunnt lag og skerið út hringlaga kökur af hæfilegri stærð. Notið gaffal til að stinga í deigið loftgöt. Bakið á flatri grill plötu þar til hliðin sem upp snýr virðist vera orðin þurr. Kökurnar eru yfirleitt aðeins brendar á köflum. Eftir baksturin, skelltu heitri kökunni augnablik í heitt vatn. Það minnkar lýkurnar á að þær verið mjög harðar. Látið þær svo kólna. |
| Lifrarpylsa | 1 kg lifur 600 gr rúgmjöl 250 gr haframjöl 150 gr hveiti 1 msk salt 1/2 l mjólk 1/2 - 1 kg mör eftir smekk Fyrst setur maður mjólkina í stórt ílát og blandar saman saltinu. Þvínæst setur maður þurrefnin útí og hrærir vel saman. Blandið svo mörinni útí. Notið suðupoka og búið til hnefastóra kúlur til að setja í pokana. Stingið göt á pokana og setjið í sjóðandi vatn í ca. 2 - 2 1/2 tíma. |
| Kokteilsósa | 100 gr sýrður rjómi (Sour Cream) 100 gr majones (SW Mayones) 3 msk tómatsósa 1 tsk sætt sinnep Blandið öllu saman og hrærið þar til það verður að fínlegri sósu. |
Hér má finna nokkrar algengar uppskriftir af hefðbundum íslenskum réttum. Hér má líka finna fjölmargar íslenskar uppskriftir.
Íslenskar uppskriftir |
Efni og aðferð |
| Pönnukökur | 2 bollar hveiti 1/2 bolli sykur 1 tsk ger (Baking Powder) 1/2 tsk matarsóti (Carbonated Soda) 1-2 egg (Tvö ef eggin eru mjög lítil, annars eitt) 1 tsk vanillu dropar 2 msk bræddu smjöri Mjók til að þynna deigið. Blanda saman öllum þurrefnum. Hræra eggjum, vanilludropum saman við. Bæta mjók útí til að þynna degið (á að vera mjög þunnt). Hrærið útí brædda smjörinu. Hitið pönnukökupönnuna. Smyrjið aðeins með smjöri. Setjið deig á pönnuna og látið renna þunnt lag um alla pönnuna. (mjög þunnt lag). Steikið og snúið pönnukökunni við þegar hún er orðin þurr að ofan. |
| Kleinur | 200 g smjörlíki 250 g sykur 2 egg 1 kg hveiti 2 tsk. lyftiduft 1 tsk. Carbonated Soda 5 dl mjólk 4 tsk. Vanilludropar 1 kg jurtafeiti 1. Blandið þurrefnunum saman á borði. |
| Laufabrauð | 900 g hveiti 100 g rúgmjöl 1 tsk ger (Baking powder) 5 dl mjólk 1 dl rjómi 0.5 dl sykur 25-30 g smjör 1 tsk. salt 1 tsk. Carbonated Soda Rúgmjöli, hveiti og geri er blandað saman í skál. Mjólkin er sett í pott ásamt smjöri, sykri og salti. Þetta er hitað að suðu og þá er rjóminn settur út í, potturinn tekinn af og hjartasaltið sett í. Vætt í þurrefnunum með mjólkinni sem freyðir og deigið síðan hnoðað. |
|
|